Guðrún
07.01.2006 22:42:38 / Gudda

Ný síða...

Jæja er komin með nýja síðu og á eflaust eftir að vera dugleg að blogga úr höfuðborginni þar sem maður er svo einmanna ;) hehe...

www.blog.central.is/dramaqueenz

Er í þessari síðu með Eydísi, Kadý, Rakel og Anítu Sif...

Allir að kíkja og kommenta.... l8ter


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 18:25:59 / Gudda

What is going on in the brainhouse... ? :s

FRIÐUR Á JÖRÐ

ÞAÐ ER ALVEG MAGNAÐ HVAÐ MAÐUR

GETUR ALLTAF FUNDIÐ SÉR EITTHVAÐ

ANNAÐ GERA EN LÆRA....

POINTLESS FÆRSLA EÐA HVAÐ...

NEI ÉG VAR BARA FINNA MÉR

EITTHVAÐ ANNAÐ GERA

HELDUR EN LÆRA :D

GUÐRÚN SELMA IS OUT...


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 11:15:45 / Gudda

Færsla

Lítið um færslur núna þar sem styttist í próf og maður er búin að vera á haus síðustu vikur. Kennarar að henda inn verkefnum og ritgerðum sem þeir hafa gleymt að gera yfir önnina jafnt og þétt og því endar þetta í því að maður þarf að gera allt á sama tíma, próf og annað... hvað er málið með það að hafa kaflapróf rétt fyrir lokapróf? Bara til að stressa mann meira upp

Er ekki alveg að skilja þetta. Fór á skólaball á síðasta föstudag, það verður leikur sem seint verður endurtekinn.. er viss um það ;) hehe

Fór á leik Snæfells-Skallagríms í gær og var svo sigurviss um mína menn að ég veðjaði við Rúnar upp á 500 kall að Skallagrímur myndi taka leikinn.. en hvað haldiði, þeir töpuðu með einu stigi.. SVEKKJANDI 500 KALL ÞAR!!!!

En ég stóð við minn hluta samningsins og borgaði Rúnari þennan pening ;) hehe, alltaf gaman að veðja við mig, ég geri alltaf svo ljóskuleg veðmál... en þetta sýnir bara að ég stend með mínum mönnum, hvorki meira né minna :) styð þá fram í rauðann dauðann.

Annars verður lítið um blogg í prófvikunum, kem bara með eina heljarinnar færslu rétt fyrir jólin... ;) enda eru bara 10 dagar í jól þegar ég er búin í prófunum

Maður er svo þvílíkt stressaður f yrir þessi próf að maður hættir bara hér ;) haha

Síjú l8ter

Gudda budda


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 17:45:54 / Gudda

Tjah ég veit ekki...

Hef lítið sem ekkert að segja, er bara búin að vera frekar mikið veik, þó að ég fari ekki nánar út í það vandamál. Fékk fullt af sprautum og ég er dauðhrædd við sprautur, það þarf alltaf einhvern að halda í hendina á mér og þangað til að ég varð svona 14 ára þurfti ég að sjá myndir sem að ég teiknaði þegar ég var kannski svona 5 eða 6 ára. En anyways...

Er bara hjá múttu í Reykjavík, alltaf nice að vera þar. Ég og Ölli búin að sækja um í Menntaskóla Kópavogs, það er bara vonandi að við komumst bæði þangað inn.. Þá myndi draumurinn rætast...

Hehe veit ekki alveg ;) En er bara hress fyrir utan allt annað, eða hress og ekki hress... Elín situr hérna hjá mér að gera eikkerjar fking bodypump æfingar og ég er að fíla það í botn ;) sexí mama :*

Kem vonandi í skólann á morgun, þarf að ná einhverju upp ef að ég á að ná prófunum. Held að það sé bara fall í öllu, ég er allaveganna helvíti svartsýn á þetta allt saman, er búin að missa meira úr en ég hefði viljað.. því miður...

Og þá er helvíti erfitt að ná einhverju upp....

Ég ætla að tilnefna manneskju vikunnar og sú manneskja mun vera ÉG... mínir nánustu vita af hverju...

Lag dagsins : Hero

I am holding out for a hero... ;D or whatever :*

Sjáumst á morgun vonandi ;)

Þessi veikindi mín hafa líka kennt mér hverjum er annt um mig ;) hverjir hafa verið að fylgjast með mér og haft áhyggjur og hverjum er alveg sama... nei djók.. en samt :*

Guðrún Selma er úti...


» 17 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 21:15:50 / Gudda

Kítlfærsla...

Það eru víst alltaf einhver æði að tröllríða bloggheiminum, en þar sem ég tók þátt í hinu, skal ég og taka þátt í þessu... :D

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

  • Giftast einhverjum...
  • Fara á NBA leik
  • Verða læknir
  • Lenda í slagsmálum
  • Búa í útlöndum
  • Vaxa bringuhárin af Ölla
  • Krúnuraka mig

7 hlutir sem ég get:

  • Skokkað á vegg
  • Eytt peningum
  • Lært
  • Sofið
  • Draslað inn/út
  • Keyrt á bíla
  • crazy eye

7 hlutir sem ég get ekki:

  • Brundað
  • Snúið hausnum í heilan hring
  • Kúkað standandi
  • Hlaupið sem epli á hausnum í gegnum Hvalfjarðargöngin
  • Sett löppina yfir hausinn á mér
  • Komið bíl inn í herbergið mitt
  • Séð um mig sjálf

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

  • Bringuhár
  • Augun
  • Persónuleikinn
  • Gáfur (margir spurja af hverju Ölli þá?)
  • Húmor
  • Hreinskilni og það að geta treyst
  • Tilfinningar

7 frægir sem heilla mig:

  • Chad Michael Murray
  • Sigfús bróðir
  • Tina Turner
  • Freddy Ljungberg
  • Julia Roberts
  • Jude Law
  • Beyonce Knowles

7 orð eða setningar sem ég segi oft:

  • steiktur
  • nákvæmlega
  • pappakassi
  • pirrandi týpa
  • homesweethome
  • doritos og ostasósa
  • hraðar

7.hlutir sem ég sé núna:

  • tærnar á Ölla
  • tærnar á mér
  • dömubindi (sem er í umbúðunum)
  • föt á gólfinu
  • spegil
  • postulínsdúkku
  • sængina mína

Jæja, þá er þetta komið, veit ekki alveg hvað er til í þessu en verð að viðurkenna að þetta var nú helvíti erfitt... ég klukka Ölla Magg, Kadý, Rakel og Eydísi (haha allar á sama blogginu lúser) og Elínu systir ;)

l8ter

Guðrún Selma


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 14:34:15 / Gudda

Helgin !!

Helgin var svo sem alveg ágæt :D skemmti mér alveg ágætlega, fór á ball á föstudag þar sem að ég var edrú og komin snemma heim og Ölli með mér ... skil ekki af hverju hann þarf alltaf að koma líka heim þegar ég fer heim ;) ekki það að mér finnist það leiðinlegt, miklu skemmtilegra heldur en að fá hann ekki !

Paparnir léku fyrir dansi, var farin áður en að þeir byrjuðu að spila, þannig að ég veit ekkert hvernig þeir voru, hlustaði bara á DJ-inn... hann var hell nettur ;)

Á föstudeginum var ég líka í afmæli hjá Rakeli.. þar var mikið tjúttað og fullt af skemmtilegu fólki, aðalfólkið var mætt á svæðið ;)

Laugardagurinn var ekki síðri, ef þá ekki bara betri, fékk boðskort um daginn í afmæli hjá Veru og Stebba og ég skellti mér þangað, þetta var fyrsta boðskortið þar sem nafn mitt og Ölla stóð saman, fyrsta en vonandi ekki síðasta ;)

Afmælið var haldið í Miðgarði og skemmtu menn sér konunglega, tónlistin í betri kantinum og allir eldhressir þrátt fyrir smá pirrandi sjitt :D en hvað er djamm án þess að nokkur tár falli ? :O marr veit ekki...

l8ter

Gudda budda


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 15:01:17 / Gudda

Maður verður aðeins að hugsa áður en maður framkvæmir !

Hef lengi verið að hugsa um það, maður hlýtur að vera stundum ómeðvitaður um það sem maður gerir? Stundum hlýtur maður að segja eitthvað til að særa þann sem stendur næst manni? Bara svona af því að manni líður þannig ! Ég veit ekki, en ég hef það samt á tilfinningunni... bara líka svona að benda fólki á að hugsa aðeins áður en það fer að segja eitthvað sem það gæti séð eftir eða gæti sært einhvern sem hefur hjálpað því í gegnum súrt og sætt... :haha:

Sit í líffræðitíma núna, hef verið að fylgjast smá með, en ekki eins og ég ætti að vera að gera ! Skil ekki skólana sem vilja hafa fartölvuskyldu. Maður fylgist ekki sjitt með ! :S

Ball á föstudaginn og hljómsveitakeppnin, veit ekki alveg hvort að ég ætli að mæta en ef að ég fer þá verð ég edrú þar sem ég er hætt að drekka og ætla að einbeita mér að öðrum mikilvægum hlutun (þó það að drekka geti verið gaman og maður á eftir að sakna þess smávegis) en allt er gott sem endar vel..  ;) og þegar ég er á fylleríum þá er það ekkert að enda eitthvað svakalega vel þannig að ég valdi bara að sleppa þessu !

Til hvers líka að vera eyða peningum í þetta ? Algerlega tilgangslaust. Margt annað í lífinu sem að ég græði miklu meira á .. annað en að liggja dauð út í runna heima hjá bestu vinkonu minnir or some ;)

anyways... er byrjuð að safna pening, fór og náði í bauk í bankann áðan og líst bara ágætlega á það að fara að safna.. Elín hvernig líst þér að gera það bara með mér ? Höfum bara gott af því ;)

More l8ter

Guðrún is out


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.10.2005 13:37:39 / Gudda

Föstudagur...

Jæja hef ekkert verið í skólanum fimmtudag og föstudag þannig að ég veit ekkert hvað er að gerast í umheiminum. Veit það eitt að mig langar á sálarball í Vestmannaeyjum um helgina, veit ekki alveg af hverju það er en ætli það sé ekki til að rifja upp þjóðhátíðarstemmarann... :D Bara gaman að því...

Litli frændi minn hann Steinar Örn á afmæli í dag, óska honum til hamingju þó að hann kunni ekki að lesa og er ekki enn farinn að tala ;)

Leikur hjá Meistaraflokk kvenna á morgun, á móti Hrunamönnum, allir að fjölmenna í BORGARNES og koma að horfa á ;) alltaf stuð í nesinu þó að annað komi fram á öðrum bloggsíðum ;) maður þarf bara að þekkja rétta fólkið og kunna á staðinn, sem fáir gera, eða allaveganna alls ekki allir :p

Líðanin er svona að skána þrátt fyrir ýmislegt....

Eitt það versta sem fólk hefur gert við mig er að segja e-ð fallegt um mig en taka það svo til baka ! How low can you go? :$

Er að spá í að leggjast upp í rúm og halda áfram að horfa á Ice Princess... mæli með henni, hún er suddalega góð, þvílík og önnur eins stelpumynd hefur ekki fundist held ég... Alltaf klassískt þegar maður er veikur heima 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 15:48:42 / Gudda

Fking harður pistill... !

Þar sem ég hef verið frekar væmin upp á síðkastið skal ég koma með einn wannabe harðan pistil í dag, setti inn púsluspil hérna áðan þar sem þið getið spreytt ykkur... gaman að því, svo skiptir maður kannski um mynd svona af og til ;) alltaf gaman að því... Fking ppl að halda að það geti bara komið fram við mann eins og það vill og logið að manni þegar því hentar bara til að hafa mann í vasanum... NEII nú fór ég alveg með það, aftur komin í vælið sem ég er altlaf í ! Það er ekki nógu gott og heldur ekki nógu sniðugt...

Helgin var nú alveg ágæt bara, mætti í keiluhöllina á fimmtudaginn, þannig að miðannarrfríið byrjaði þannig... ágætishelvíti það drasl... ! Hef engann áhuga á því samt að vera að deila neinu frekar úr þeirri ferð :D

Á föstudeginum var ég víst bara að vinna og skellti mér svo á æfingu sem heppnaðist bara ágætlega, það var nefnilega leikur daginn eftir sem var á móti Tindastól, töpuðum að vísu en fyrstu leikurinn var sigurleikur... andskotans kaninn í liðinu, vAltraði bara yfir allt og alla, gekk ekki alveg nógu vel að halda henni í skefjum.... tek það meirað segja allt á mig...

Laugardagurinn fór í leikinn og svo var tekið nett skver í höfuðborginni og einhverjir skemmtistaðir speccaðir.. kíkti að vísu í eitthvað 30 afmæli sem var alveg ágætisskemmtun, var edrú og drakk ekkert nema Egilsappelsínið sem var í boði, hellti að vísu í aðra en hvað með það!

Svo var nefnilega mál með vexti að þegar ég vakna á sunnudaginn þá er klukkan korter í tíu og mín átti að mæta í vinnu korteri seinna í Borgarnesinu, þegar ég var að bakka út úr stæðinu, hvað haldiði að hafi gerst!!!! Hell yeah... það var nefnilega það !!! Ég var svo fking heimsk að ég dúndraði bara á bensíngjöfina og bakkaði á..

Guðrún kveður

er ekki ljóshærð fyrir ekki neitt ! :P


» 102 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 14:46:01 / Gudda

Pússluspil...

http://three.flash-gear.com/npuz/puz.php?c=v&id=778952&k=78289823

Endilega prufa að púsla þetta helvítis drasl.. hahah mynd af okkur stelpunum...


» 96 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 14:29:24 / Gudda

some ppl tell me that i need help... og svo framvegis

Loksins þori maður að láta að sér kveða og sýna fólki að maður hefur tilfinningar. Að það´sé ekki endalaust hægt að láta vaða yfir sig... just letting know that i am alive og hell kvíðin fyrir prófið á eftir í líffræði...

Sjitturinn titturinn.... Ég, Agla, Maren, Fylkir, Stebbi og Una sátum hér í skólanum í gærkveldi heillengi að læra fyrir þetta próf en ég er ekki það viss um að eikkað hafi verið lært.. hahah

EN l8ter


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.10.2005 11:44:10 / Gudda

Kveðjið ætíð með ást í huga...

Ákvað að henda inn einum sætum pistli hérna, hann verður mjög stuttorður og það eina sem ég ætla að segja er að :

  • Ekki ljúga upp á aðra
  • Verið góðir við náungann
  • Ekki koma hlutunum yfir á aðra bara svo að þið getið fengið fólk á móti einhverjum öðrum.
  • Leyfið fólki að vera það sjálft.
  • Kveðjið ætíð með ást í huga
  • Berið virðingu fyrir fólki og standið við það sem þið segið.
  • Verið vinir vina ykkar og sérstaklega þeirra sem að standa með ykkur í gegnum hvað sem er og fórna hverju sem er fyrir ykkur.

Guðrún Selma kveður með ást :*


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 11:09:25 / Gudda

Ágætis helgi að baki ;)

Jæja, ég skellti mér loksins í langþráða heimsókn til mömmu minnar og á djammið með systur minni þar sem leið mín lá með henni á Lokahóf KSÍ.

Það var alveg ágætisskemmtun og gæti vel endurtekið það, maður var nú orðinn frekar þreyttur í fótunum eftir mikinn dans og mikla skemmtun, maður skellti sér upp á svið með stjórhljómsveit kvöldsins Á MÓTI SÓL á meðal fjölda fólks og tjúttaði þar eins og maður ætti líf sitt að leysa! :D

Alltaf gaman að kíkja út með Elínu systir...

Fékk myndavélina mína aftur í gær, þannig að myndir eru væntanlegar inn, samt engar nýjar myndir, allt frekar gamlar. Því er nú verr og miður, en samt sem áður er alltaf gaman að sjá eitthvað nýtt þó að það sé gamalt ;) myndir frá þjóðhátíð svo eitthvað sé nefnt :p

Nenni ekki að skrifa meira þannig að l8ter

Guðrún S.


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 18:25:20 / Gudda

Skrítið hvernig gleði getur svona allt í einu færst inn í líf manns :'*

Ég sit núna og er að gera efnafræðiskýrslu, fór þá allt í einu að hugsa um frænda minn sem býr út í Boston því að móðir mín var að bera mér kveðju hans... Fór að hugsa um þeirra einkalíf þar sem þau hafa verið að reyna að eignast barn en ekki tekist... en nú er hún ólétt ... og gengur með strák? Skrítið, kannski allt í einu þegar maður hefur gefið upp vonin kemur þessi litli neisti sem gerir lífið svo fallegt! Afkomandi manns, lítið kríli sem maður ber og það vex inn í manni, það er skrítið að hugsa um þetta...8) en samt sem áður er það mjög fallegt...

Móðir mín hringdi til að segja mér þessar fréttir.. og svo bætti hún við að ég gæti farið þangað næsta sumar í tvo mánuði til að passa, maður hefur ekki áttað sig á því hingað til hvað er mikilvægt og erfitt að passa, hvað það er ábyrgðarfullt starf... maður hefur líf lítils einstaklings í höndum sér og það eru undir manni komið hvað maður segir og gerir, því þetta litla kríli lítur að vissu leyti upp til manns og hermir allt eftir manni :$

Ég fór bara allt í einu að velta þessu fyrir mér þar sem að ég fékk fréttir af frænda mínum og meðgöngu konu hans, og ég áttaði mig á því hvað þetta er fallegt, hvað fjölskylda er falleg, hvað ást og væntumþykja er falleg.. þó hún geti verið öfgakennd... í flestum tilvikum er hún vonandi falleg fyrir alla.. og hvað þá frænda minn og eiginkonu hans, þar sem þau eru að fá draum sinn uppfylltan... þetta er allt saman svo fallegt að maður áttar sig ekki á því...

Maður þarfnast þess virkilega segi ég enn og aftur, að setjast niður og velta hlutunum sem skipta máli fyrir sér, það er mjög mikilvægt að átta sig á því hvað maður vill og hvað allt er merkilegt, heimurinn er svo miklu meiri og stærri heldur en maður sjálfur... og ég áttaði mig betur á því núna en ég hafði gert áður... bara við það að fá þessar gleðifréttir og hugsa til frænda míns.. .en ég vildi bara deila þessu með ykkur...

L8ter

Gussa geit :*


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 13:57:43 / Gudda

Icelandic please :O

Sit í íslensku tíma núna, ætti að vera að fylgjast með þar sem þetta er nú frekar erfitt, eurm að læra einhver ljóð utan af sem hann Egill orti í Egilssögu, góð saga samt, segi ekkert annað ;)

Líður bara mjög vel og ákvað að breyta nafninu mínu í Gleðilína.. nota bene Elín Anna.. GLEÐILÍNA !!  Gaman að því og ekkert annað en það :D Er ánægð með lífið og tilveruna núna og vona bara að allt gangi á eftir sem var mér lofað hérna áðan ;) hehe takið til sín sem eiga.. en ég er ánægð með þetta :)

Eina sem fer í skapið á mér núna er að ég er með slæma vöðvabólgu að ég haldi, og það er mjög óþægilegt :s

Ég er allaveganna ekki nógu góð í öxlunum og hálsinum... en félagi minn ætlar að redda því :* :*

L8ter og allir að kvitta ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Leitarbox